|
|
23.03.2007 09:27:41 / bigman
Verð ég orðinn árinu eldi, eða 24. ára gamall. Jibbý, og gráu hárin
færast nær og nær....
»
22.03.2007 22:34:44 / bigman
Enn og aftur er ég ekki að standa mig í blogginu. Það er
svosem ekkert brjálæðislegt að frétta. Skólinn gengur sinn
hæga vanagang. Sigrún varð bikarmeistari um daginn.
United rúlla upp deildinni.
Þessa vikuna voru skólabúðir á Laugarvatni þar sem
Áslandsskóli kom í heimsókn og gekk ferðin að mestu leiti
vel. Beta systir er búnað fara oftar til útlanda undanfarna
tíu daga en ég mun fara allt árið. Mér finnst eins og ALLIR
nema ég séu að fara utan, og það er alveg hundleiðinlegt .
Annars verð ég árinu eldri á morgun kl. 13:23, jibbý gaman fyrir
því.
»
06.03.2007 10:59:20 / bigman
Það er bara nóg að gera þessa dagana, vægast sagt. Tímar á
fullu þessa vikuna, bíó á fimmtudag, árhátíð á föstudaginn og
bikarúrslitaleikur hjá Sigrúnu á Laugardaginn.
Hversu ljúft var að sjá boltann liggja í netinu "Kop" meginn á
Anfield um hálf þrjú leitið ?? Ætla ekki að monta mig af
þessum leik því þetta voru heppnis þrjú stig.
Ég vona bara innilega að Barca vinni Liverpool örugglega í
kvöld. Og svo allir í höllina á Laugardaginn...
»
03.03.2007 10:44:27 / bigman
“Hann
flýgur fljótt, og fyrr en varir flest er
breytt”.
Já það má segja, fyrir utan hvað það er frekar mikið langt síðan
ég hef bloggað. Maður hefur verið meira en minna
í bænum undanfarið, hvort sem er að vinna, eða
læra.
Ég skildi loksins um daginn af hverju það voru allir að tala um að
Forest Whitaker myndi fá óskarinn fyrir einhvern mynd sem ég héldi
að fjallaði um “skorsku konungsfjölskylduna”, fyrir utan að sú
fjölskylda er ekki til, því fannst mér þeta svolítið
skrýtið. En við sumsé fórum á hana um daginn, og
þvílík framistaða hjá kallinum. Myndin sem slík
er all svakaleg, en hann vinnur einfaldlega leiksigur, og átti
óskarinn svo sannarlega
skilinn.Í dag er auðvitað alveg svakalegur
leikur! Ef mínir menn í United vinna litla liðið
á Anfield þá titilinn ansi nálægt, en ef ekki þá er allt
opið. Hvernig sem þetta fer þá verður þetta
barátta í 90 mín.Ég fór á x-factor í gær ásamtt
nokkrum frændssystkinum, og það er leiðilegt að sjá hvað heilu
bæjarfélögum eyða pening í síma og sms-kostningar bara til að halda
LÉLEGUM söngvara inni. Hann Gylfi á að vera
löngu farinn heim, enginn spurning, hann er yfirburða dapur í
þessari keppni. En það var gaman að sjá svipinn
á litla fólkinu í gær þegar þetta var í gangi, en þó verður alveg
að viðurkennast að Halla Vilhjálms ætti ekki að fara í uppistand
eða slíkt var ekki alveg að gera sig í auglýsinga hléum og
öðru. En ætli ég og minn aldur séum markhópur
þessa þáttar yfir
höfuð? Það er spurningin....
»
18.01.2007 10:58:55 / bigman
»
16.01.2007 22:20:56 / bigman
Tímarnir breytast og mennirnir
með, það er nokkuð ljóst. Núna er svo komið að því að
það er töluvert um breytingar hjá mér á minni
skólagöngu. Fyrir
það fyrsta þá er ég búinn að segja upp leigusamningnum sem ég
var með á heimavistinni, og er að flytja heim og fara að keyra á
milli rvk og laugarvatns. Það eru ástæður fyrir því sem
ég nenni ekki að tíunda hér, enda allt í góðu
samt.
Í vetur stemmdi í að ég myndi taka 2
kúrsa með 3.árinu og svo rest með mínu ári, þetta hefði skapað
þvílíkt vesen útaf akstri, árekstrum við aðra kúrsa og ég veit ekki
hvað og hvað. En í dag
fékkst ákveðin lausn á málinu og þetta er allt komið á hreint, ég
sæki alla tíma með mínu ári, og það er flott.
Annars er svosem ágætt að vera byrjaður í skólanum aftur, nóg að
gera og svona, en vissulega breytingar framundan. Herbergið mitt
verður tómlegra með hverri stundinni, enda er ég smátt og smátt að
tæma útúr því....
En allavega, back to school, back to
business.....
»
06.01.2007 17:06:56 / bigman
Þó nýtt ár sé komið hefur svosem
ekki mikið breyst. Við
fórum reyndar á rosalega flotta tónleika með sálinnni og gospell
þann. 30. des sem ég bara steingleymdi að segja frá.
Þar var verulega flott verk á ferðinni. Það
styttist í að skólinn byrji, það er vinna á fullu, og svo er
allt eitt og annað sem þarf að gera. Ég held samt að eitt það sem
besta sem ég hef gert á nýju ári er að fara í bíó á myndina Köld
Slóð. Þar er fín,
ekta íslensk spennumynd á ferðinni, morð, draugar og allur
pakkinn bara.
Myndin kom mér verulega á óvart og bara vel gerð í
allastaði.
“Voðalega er eitthvað heitt hérna inni J” Gullmoli fyrir þá sem hafa
séð myndina.
Annars bara afskaplega lítið að
frétta svosem
»
31.12.2006 18:07:58 / bigman
Vill óska öllum gleðilegs nýs árs, takk fyrir gamla og gömlu,
sjáumst fersk á nýju ári.
»
28.11.2006 21:57:27 / bigman
Í gær og og í dag voru próf í skyndhjálp og björgun, alls voru
þau þrjú, verklegt, munnlegt og bóklegt. Það verklega var í gær, og
gekk vel, og ég var gríðarlega sáttur með að ná að klára það
vel.
Dagurinn var svo tekinn í lærdóm fyrir daginn ídag, en þá voru 2
próf, frekar massívur dagur. Skriflega prófið gekk nokkuð vel held
ég, en eftir það var eiginlega skrýtið ástand, aftur að lesa
nákvæmlega sama efnið, samt reynað hvíla sig aðeins. Daguirnn var
skrýtinn í meira lagi, bið á eftir bið í þetta blessaða munnlega
próf og svo bætist eitt stykki hálftíma seinkun við.
Sem betur fer kláraðist prófið um fimm leitið, hvernig það fór er
erfitt að segja, byrjaði vel, hefði svosem getað endað betur. Í
kvöld er svo verkefnavinna við að klára eitt í íþróttasálfræði
fyrir morgudaginn, og svo er það í bæinn, það verður fínt að fara
af vatninu...
sælar
»
26.11.2006 21:43:43 / bigman
Það styttist óðum í þessi blessuðu jólapróf, raunar er það fyrsta á
morgun! Og því eru dagnarnir núna nýttir í lærdóm. Við skötuhjúin
höfum búið útí skóla þessa helgina, vorum mætt í gær og í morgun
vel fyrir níu og höfum lesið alveg fjandi mikið. Á föstudaginn var
langur lestrardagur, matur í læknum og svo bara chill. Við horfðum
á x-factor, og þessi Ellý í Q4you er náttla bara kex rugluð, það
sést langar leiðir hún er ekki með alla perurnar í lagi. Ég held að
við höfum sofnað í kringum ellefu leitið, slik var þreyttan. Vaknað
klukkan sjö, uppí skóla og lesa lesa. Það er verklegt
skyndihjálparpróf á morgun og það verður tekið með stæl! Svo er
bóklegt og munnlegt daginn eftir, þannig að það er bara harkan sex
næstu daga. Við bökuðum svo laufabrauð í gær, reyndar ekki ég og
Sigrún, við komum bara í matinn sem var mjög góður, og svo bara
snemma í háttinn. United og Chelsea gerðu jafntefli í hörkuleik og
bara fín auglýsing fyrir enska boltann Jæja, aftur í bækurnar,
sælar!
»
22.11.2006 23:27:58 / bigman
Já núna er fjörið, brjálað að gera
á öllum vígstöðum og þannig á það að vera. Þessa dagana er æfingakennsla
í fullum gangi sem og verkefnavinna. Það styttist ennfremur í
prófin “skemmtilegu”. En á milli er auðvitað lært og
lært, og slakað á.
Daniel Craig er góður sem James bond, en þessi dani sem leikur
“le chiffre” er engan veginn að gera sig.
En vá hvað er málið með allan þennan snjó sem ákvað að koma um
helgina, allt er gott í hófi, en núna er það sem myndi kallast
slabb og leiðindafærð.
Samt var nánast ekki snjókorn á Laugarvatni.
Ég bara nenni ekki að ræða fótbolta núna, en það verður svaðalegur
leikur á sunnudaginn þegar united vondandi vinnur chelsea
örugglega.
bæ
»
18.11.2006 12:02:33 / bigman
Ég held að þessi vika sem er að klára
sé ein sú kaldasta sem ég man eftir. Það er bara kalt á þessu landi,
og ég hugsaði karli föður mínum þegjandi þörfina í verandi í
hitanum í Dubai af öllum löndum. Annars get ég svosem ekki mikið
kvartað á meðan ég er ekki að vinna úti eins og t.d.
verkamenn. Ég er búnað
búa útí skóla í vikunni að lesa, og það er vægast sagt nóg að
gera. Á fimmtudaginn
kom svo akademían í heimsókn til okkar, og auðvitað unnum við
Laugvetningar íþróttagreinarnar, nema hvað!
Æfingakennslan sama dag gekk vel, amen fyrir því.
Ef allt er eðlilegt þessa helgi þá
vinnur United, Chelsea vinnur, Drogba skorar, og Liverpool
tapar.....Annað væri mjög óeðlilegt.
Vá hvað það er eitthvað lítið að
segja.....
»
15.11.2006 10:56:01 / bigman
Það er lítið í fréttum þessa dagana. Núna býr maður niður í Kennó í
Stakkahlíð og les les les. Mamma og pabbi komi þreytt og brún heim
frá suður-afríku á mánudaginn og ég gæti trúað að það hafi verið
nett frekar gaman. Núna á morgun er “alvaran að byrja” ef svo má
segja, því þá hefst æfingarkennsla hjá mér, og það gengur vonandi
bara vel. En hvað er málið með allt þetta jóla-hype sem er komið í
gang, okei það er miður nóvember en VÁ! Allar þessar auglýsingar,
og bæklingar sem nú þegar komið, búið að opna jólaland og ég veit
ekki hvað og hvað...... Fyrir mér byrja jólin ekki fyrr en vð gerum
laufabrauð í lok nóv/byrjun des, og svo hefst gleðin þegar þessi
blessuðu próf eru búin. Fleira var það nú ekki í bili, áfram með
lesturinn
»
08.11.2006 22:39:24 / bigman
Ég hugsa að það verði seint sagt
að næringarfræði sem skemmtilegasta fag í heimi  , en
engu að síður þarf víst að læra hana....Það er einmitt að það
sem ég er að gera þessa dagana, próf á föstudaginn, og jibbý,
æðislega gaman eins og þið getið rétt ímyndað ykkur
 . Skólinn hefur
verið svona að meðaltali 2 tímar á dag í núna í vikunni, og því
hef ég keyrt á milli Laugarvatns og rvk, sem er sosem þreytandi,
en allt í lagi samt. Það er svosem ekkert
gríðarlegt í fréttum beint, mikill tími fer í lestur, hreyfingu
og svo að eiga kósý kvöldstundir í góðum
félagsskap.
Hinsvegar var alveg fáránlega slæm
færð uppá Laugarvatn í morgun, og við voru tæpa tvo tíma á
leiðinni, enda hafði greinilega kyngt duglega niður í gærnótt, mæli
með því að fólk verði tímanlega á ferðinni næstu daga.
En bækurnar kalla
víst.....sælar
»
06.11.2006 16:24:01 / bigman
Helgin var bara nokkuð góð myndi ég
segja. Föstudagurinn
var tekin í vinnu á herrakvöldi Vals, og svo kíkt stutt niðrí
bæ. Laugardagurinn var
svo bara chill með blandi af lærdóm og enska
boltanum. Um
kvöldið kíktu svo strákarnir til mín o g svo fór ég í
bekkjarpartý hjá Sigrúnu og svo niðurí bæ. Sökum veður var slútt um
kl. 4 um morguninn.....Þvílíkt veður sem var á laugardaginn,
skuggalegt óveður. Sunnudagurinn var tekin með hæfilegu
kæruleysi, bókum, handboltaleik og þvílíkt góðu læri í
matinn. Við
vorum fjandi dugleg skötuhjúin útí skóla. Um kvöldið var svo
rólegheita dvd áhorf og snemma í háttinn... Var svo í
skólanum í morgun að læra, en vinna í krakkoti þegar þetta er
skrifað. Í kvöld
er svo ætlunin að elda Kjúlla í mangósósu fyrir okkur tvö, í
fyrsta skipti sem ég ætla að elda svona “alvöru” máltíð, og
afraksturinn verður athyglisverður.
Ég var sáttur með mín lið um helgina,
United rústaði Pompey, og Valur vann Fram öruggt í
handboltanum. Chelsea
og arsenik töpuðu bæði og því var þetta fjandi vel gert þessa
helgina.....
sælar
»
Síður: 1 2 3 ... 20
|
|